Bæjarbakarí ehf áskilur sér rétt til að fresta eða hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta, fresta eða hætta við pantanir símleiðis.
Allar vörur eru afgreiddar á opnunartímum verslana okkar. Sé varan ekki til á lager eða uppseld mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Allar sendar pantanir eru dreifðar af Íslandspósti eða Flugfélagi Íslands og gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts/Flugfélags Íslands um afhendingu vörunnar. Bæjarbakarí ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Bæjarbakarí ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Kaupandi verður að tilkynna Bæjarbakarí ehf með a.m.k. 2ja daga fyrirvara, fyrir afhendingu vörunnar, ef hætta skal við pöntun. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið eða taka af merki miða. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Öll vöruskil eru á
kosnað kaupanda. Inneignar nóta er gefin út ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Bæjarbakarí ehf með spurningar.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara. Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum að undanskyldu með lögvaldi.
Allar myndir á vefsíðunni eru eign Bæjarbakarí ehf. Skriflegt leyfi þarf til að nota þær.
Opnunartími:
Mánudaga – Föstudaga: 07:30-18:00
Laugardaga: 07:30-16:00
Sunnudaga: 08:30-16:00
Bæjarbakarí ehf - Bæjarhrauni 2 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555-0480 - Fax 555-0483
bakstur@bakstur.is - Kt. 690890-1439 - VSK nr. 25627 - Skilmálar