Banner

Ný heimasíða og netverslun

24 mars, 2010

Velkominn á nýja heimasíðu Bæjarbakarí.

Hér munu birtast fréttir og annar fróðleikur eins og við höfum haft vanann á.

Fyrir utan nýtt útlit síðunar þá hefur vefverslunin verið heldur betur uppfærð. Hún hefur verið gerð mun aðgengilegri og hægt er að smella á allar myndir til að fá þær stærri. Vefverslunin er PCI öryggisvottuð og allar greiðslur fara fram með Kortaþjónustunni. Til að fræðast betur um öryggismál kortaþjónustunnar smelltu þá á "lesa meira".

 

 

Öryggismál:  PCI DSS - Payment Card Industry Data Security Standard
PCI er öryggisstaðall alþjóðlegu kortafyrirtækjanna Visa International og MasterCard International, sem heitir PCI DSS og stendur fyrir Payment Card Industry Data Security Standard.  PCI öryggisstaðallinn er margþættur og setur mjög strangar öryggiskröfur sem ná yfir alla þætti og allar hliðar á gagnaöryggi í kerfisrekstri og rekstri fyrirtækja sem meðhöndla kortanúmer.

Staðallinn gerir kröfu um að öll fyrirtæki sem meðhöndla kortaupplýsingar fullnægi viðkomandi kröfum.  Á hverju ári þarf viðurkenndur úttektaraðili að framkvæma heildarúttekt til að votta að staðlinum sé fullnægt.  Auk þess eru gerðar óvæntar árásir minnst fjórum sinnum á ári til að kanna hvort á einhvern hátt sé hægt að komast inn í kerfi viðkomandi fyrirtækja.  Árásaraðilar notast ávallt við nýjustu þekktu aðferðir af FBI og SANS, sem eru helstu upplýsingaöryggisstofnanir heimsins.

Kortaþjónustan fékk fyrst íslenskra fyrirtækja PCI vottun í lok ársins 2005 og var vottunin endurnýjuð í febrúar 2007.  PBS í Danmörku, sem er megin þjónustuaðili fyrir MasterCard og Visa í Danmörku, er einnig með PCI vottun.

Búast má við að á komandi árum munu einnig önnur fyrirtæki sem starfa í kortaviðskiptum á Íslandi uppfæra eigin öryggi og fá PCI vottun.
Til baka

Opnunartími:
Mánudaga – Föstudaga: 07:30-18:00
Laugardaga: 07:30-16:00
Sunnudaga: 08:30-16:00

Bæjarbakarí ehf - Bæjarhrauni 2 - 220 Hafnarfjörður - Sími 555-0480 - Fax 555-0483
bakstur@bakstur.is - Kt. 690890-1439 - VSK nr. 25627 - Skilmálar

© 2010 Uppsetning og hönnun Hýsir.is